Innlent

Lýst eftir 15 ára dreng í Reykjanesbæ

Grétar Arnar Ellertsson fór að heiman á föstudag og hefur ekki spurst til hans síðan
Grétar Arnar Ellertsson fór að heiman á föstudag og hefur ekki spurst til hans síðan
Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir 15 ára pilti, Grétari Arnari Ellertssyni. Hann er búsettur að Tjarnabraut 8d í Reykjanesbæ.

Grétar fór að heiman á föstudag og hefur ekki spurst til hans síðan þá. Talið er að hann haldi til í Reykjanesbæ.

Grétar er 165 sentimetrar á hæð, þéttvaxinn, með mjög snöggklippt skollitað hár. Hann notar gleraugu.

Hann var klæddur í dökka úlpu, í rauðköflótta hettupeysu og í dökkar gallabuxur. Hann er alla jafna með derhúfu á höfði.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Grétars eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á Suðurnesjum í síma 420-1800.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×