Fótbolti

Jafnt hjá Hoffenheim og Borussia Dortmund

Rafnar Orri Gunnarsson skrifar
Úr leiknum í dag.
Úr leiknum í dag.

Gylfi Sigurðsson og félagar í Hoffenheim gerðu, 1-1, jafntefli við Borussia Dortmund er liðin mættust í þýsku úrvalsdeildinni í dag.

Fyrsta mark leiksins kom snemma leiks en það skoraði framherjinn Demba Ba á níundu mínútu leiksins. Heimamenn fengu fljótt tækifæri til að jafna en klúðruðu vítaspyrnu þegar að korter var liðið af leiknum.

Þeir jöfnuðu svo leikinn undir lokin en þá skoraði Antonio da Silva beint úr aukaspyrnu og lokatölur 1-1.

Gylfi Sigurðsson kom inná sem varamaður í hálfleik og spilaði síðari hlutann.

Hoffenheim situr nú í fjórða sæti deildarinnar með 15 stig en Dortmund hinsvegar á toppnum með 22 stig.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×