Innlent

Hlaupið minna en það fyrra - þó meira krap í því

Flóðið úr Eyjafjallajökli er komið niður að nýju Markafljótsbrú. Það er minna en flóðið sem skall á í hádeginu í dag að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli en aftur á móti er meira krap í þessu flóði. Þó er óljóst hvort það hafi einhver sérstök áhrif.

Markafljótsbrúin stendur enn óskemmd þrátt fyrir gríðarlegt álag.

Almannavarnir afléttu rýmingu á stórum hluta svæðisins fyrr í kvöld. Sumir íbúar eru farnir aftur heim til sín, þó ekki allir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×