Fótbolti

Naumur sigur hjá Flensburg

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kári Kristján Kristjánsson í leiknum í kvöld.
Kári Kristján Kristjánsson í leiknum í kvöld. Nordic Photos / Bongarts
Keppni hófst í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld þegar að Wetzlar tók á móti Flensburg.

Þar báru gestirnir nauman sigur úr býtum, 29-28, eftir að staðan var jöfn í hálfleik, 15-15.

Kári Kristján Kristjánsson lék sinn fyrsta deildarleik með Wetzlar í dag og skoraði í honum eitt mark.

Kevin Schmidt skoraði átta mörk fyrir Wetzlar en hjá Flensburg var Oscar Carlen markahæstur með átta mörk.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×