Fótbolti

Ítalskur dómari á Laugardalsvelli á föstudag

Elvar Geir Magnússon skrifar

Það verður ítalskur dómarakvartett á viðureign Íslands og Noregs á Laugardalsvelli á föstudag. Dómarinn heitir Luca Banti og er fæddur 1974.

Hann var gerður að milliríkjadómara í fyrra en hann dæmdi leik Bari og Juventus um síðustu helgi.

Dómaraeftirlitsmaður leiksins kemur frá Þýskalandi og eftirlitsmaður UEFA er frá Wales.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×