Breið samstaða náðist 14. júní 2010 05:30 Haldinn verður þjóðfundur með svipuðu sniði og í nóvember áður en boðað verður til stjórnlagaþings, verði frumvarp um stjórnlagaþing samþykkt. Tillaga um nýja stjórnarskrá verður lögð fyrir haustþing 2011.fréttablaðið/pjetur
Samstaða hefur náðst á Alþingi um afgreiðslu frumvarps um stjórnlagaþing. Forsenda hennar voru breytingartillögur allsherjarnefndar og búist er við að frumvarpið verði samþykkt á næstu dögum. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra lagði frumvarpið fram 4. nóvember. Í því er gert ráð fyrir að stjórnlagaþing geri tillögur um breytingar á stjórnarskrá, sem síðan fari fyrir Alþingi; enda geti það eitt breytt lögum. Sjálfstæðismenn hafa helst sett sig á móti hugmyndinni um stjórnlagaþing og hafa viljað fara hefðbundnari leiðir stjórnarskrárnefndar. Málið hefur verið nokkuð rætt, bæði í þingsal og eins í nefnd, og nú hefur samkomulag náðst. Tvær breytingartillögur voru gerðar við frumvarpið. Í þeirri fyrri er skerpt á ákvæðum um kosningarétt og kjörskrár, hvernig atkvæði skuli talin og hvernig farið skuli með kærur. Í hinni breytingartillögunni er kveðið á um stofnun sjö manna nefndar sem undirbúi og haldi utan um þjóðfund, þar sem fjallað verður um stjórnarskrána. Þá ber henni að taka saman upplýsingar sem nýst gætu stjórnlagaþinginu og undirbúa tillögur þjóðfundarins til stjórnlagaþingsins. Fulltrúar allra flokka í allsherjarnefnd standa að þessari tillögu, nema fulltrúi Framsóknarflokksins, Vigdís Hauksdóttir. Ekki náðist í hana við vinnslu fréttarinnar. Árni Þór Sigurðsson, varaformaður allsherjarnefndar, segir að með síðartöldu breytingartillögunni hafi tekist að ná breiðari pólitískri samstöðu um málið. Það sé mjög eftirsóknarvert, því stjórnarskráin sé svo mikilvæg að best sé að um hana ríki sátt. „Þær breytingar sem efnislega er verið að leggja til snúa að því að áður en til stjórnlagaþings kemur verði efnt til þjóðfundar, með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Það sé svo skipuð nefnd sem haldi utan um þjóðfundinn og vinni úr honum upp í hendurnar á stjórnlagaþinginu. Hún skoði einnig breytingar og hugmyndir fyrri ára og leggi einhverjar tillögur fyrir stjórnlagaþingið.“ Árni Þór segir stjórnlagaþinginu í sjálfsvald sett hvað það geri við þær tillögur eða hvort það taki tillit til þeirra. Með þessu sé hins vegar ákveðinni undirbúningsvinnu lokið þegar kemur að stjórnlagaþinginu sjálfu. Þá verði tryggt að fleiri komi að málinu, en á þjóðfundi gætu setið um 1.000 fulltrúar.kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið „Faðir minn stakk rýting í bakið á mér“ Innlent Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni Innlent Festist í fjöru á höfuðborgarsvæðinu Innlent „Flokkur fólksins virðist hafa látið plata sig algjörlega“ Innlent Sellur Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks hafi komið í veg fyrir að samningar næðust Innlent Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Erlent Fyrrverandi þingmenn fá ekki sendiherrastöður Innlent Vilja byggja 30 þúsund fermetra verslunarkjarna Innlent Stefán útvarpsstjóri vandar Mogganum ekki kveðjurnar Innlent „Óhjákvæmilega mikil sorg og vanlíðan“ þegar svona mál komi upp Innlent Fleiri fréttir „Faðir minn stakk rýting í bakið á mér“ Festist í fjöru á höfuðborgarsvæðinu Vilja byggja 30 þúsund fermetra verslunarkjarna Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni „Flokkur fólksins virðist hafa látið plata sig algjörlega“ Sellur Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks hafi komið í veg fyrir að samningar næðust Kennarar gengu út og nýr borgarstjórnarmeirihluti Nýr borgarstjóri studdi tillögu sáttasemjara Fyrrverandi þingmenn fá ekki sendiherrastöður „Óhjákvæmilega mikil sorg og vanlíðan“ þegar svona mál komi upp Svona skipta oddvitarnir stólunum Voru búin að segja að þeim hugnaðist ekki tillaga Ástráðs Stefán útvarpsstjóri vandar Mogganum ekki kveðjurnar Henti byssunni upp á þak um hábjartan dag „Þetta eru mikil vonbrigði fyrir okkur“ Skilur vel reiðina sem blossi upp Útganga kennara kom formanninum í opna skjöldu Gátu ekki lent í þoku í Osló því flugmenn eru enn í þjálfun á Airbus Svona var blaðamannafundur nýs meirihluta í Reykjavík Óljóst með skólahald eftir helgi Trans fólk veigri sér við ferðalögum til Bandaríkjanna Nýr meirihluti muni ekki vaða í stærri deilumál Ósáttir kennarar yfirgefa skólana Jöklar jarðar rýrna mun hraðar en áður vegna aukinnar hlýnunar Niðurstöðu beðið í Karphúsinu Sveitarfélögin höfnuðu tillögunni á elleftu stundu Algengt að rútubílstjórar keyri á túninu Búrfellslundur verður Vaðölduver Uggur í fólki og Hinsegin kórinn hættur við að taka þátt í World Pride í Washington Ætlar að tjalda í Kópavogi þangað til meirihlutinn springur Sjá meira