Golf

Aldrei verið eins margir góðir kylfingar á Íslandi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ólafur Björn.
Ólafur Björn. Stefán Garðarsson
Ólafur Björn Loftsson tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í Grafarholti í fyrra á dramatískan hátt. Hann kom þá til baka á lokaholunum og tryggði sér síðan titilinn með einhverju stórkostlegasta pútti sem sést hefur á íslenskum golfvelli.

„Spennustigið hjá mér fyrir mótið er mjög gott og ég hlakka til að byrja. Ég mæti til leiks fullur sjálfstrausts og bjartsýnn. Að sjálfsögðu stefni ég að því að verja titilinn," sagði Ólafur Björn þar sem hann var við æfingar í Kiðjaberginu í gær.

„Það verður óneitanlega meira pressa á mér þar sem ég hef titil að verja. Það truflar mig ekkert því ég kann ágætlega við að spila undir pressu og spila oft best þegar pressan er hvað mest."

Ólafur Björn segir að það verði frábært að spila Íslandsmótið á þessum skemmtilega velli sem er umlukinn glæsilegri náttúru.

„Það er ótrúlegur andi þarna á vellinum. Svo er þetta það skemmtilegt mót að það er ómögulegt annað en að njóta sín," sagði Ólafur Björn, en hverjir verða hans helstu keppinautar um helgina?

„Það er ómögulegt að segja. Við eigum ótrúlegan fjölda af góðum kylfingum um þessar mundir og ég tel að það hafi aldrei áður verið eins margir góðir kylfingar á Íslandi," sagði Ólafur en kylfingar munu væntanlega ekki spila í sömu blíðu og hefur verið síðustu daga enda spáð rigningu og roki um helgina.

„Þetta mót mun líklega ráðast á því hver gerir fæstu mistökin. Ekki hverjir ná í flesta fuglana. Það verður nauðsynlegt að halda bolta í leik."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×