Eins og komið sé í land dauðans 29. maí 2010 02:00 Um helmingur hópsins tók til hendinni á Skógum en fimm smærri hópar héldu á bæi þar sem hjálpar var þörf, á Hrútafelli, Rauðafelli, Seljavöllum og Þorvaldseyri. Mynd/Landsbankinn „
Þar sem þetta er verst er eins og verið sé að koma inn í land dauðans,“ segir Ólafía Aðalsteinsdóttir, starfsmaður útibúaþjónustu Landsbankans, um þær aðstæður sem mættu sjálfboðaliðum í hreinsunarstarfi undir Eyjafjöllum í vikunni. Hún segir að víða megi sjá gras og annan gróður stinga sér upp úr öskunni, en annars staðar sé stemningin eins og eftir kjarnorkusprengingu. Ekki sjáist annað en svart og grátt í umhverfinu. Ólafía var í um 100 manna hópi starfsmanna Landsbankans sem lagði íbúum svæðisins lið við öskuhreinsun í vikunni. Um tíundi partur starfsmanna bankans fór til þessara starfa, hóf vinnu snemma að morgni og vann fram undir kvöld. Heimildin til þess er sögð í takt við nýja stefnu um sjálfboðastarf starfsmanna, sem sé afrakstur af stefnumótunarvinnu bankans. Hópurinn gaf sig fram á Heimalandi og laut eftir það verkstjórn heimamanna í hreinsunarstarfinu. Starfsmannafélag Landsbankans, bauð fram aðstoð sína þegar skipulögð öskuhreinsun hófst á svæðinu, en fjölmargir hópar hafa komið að því starfi. - óká
Mest lesið Óttast um örlög farþega eftir árekstur flugvélar og þyrlu í Washington Erlent Kóranbrennumaður skotinn til bana í beinni í Svíþjóð Erlent Starfsemin sé ekki tryggð miðað við núverandi framlög Innlent Segja formann fræðslunefndar hafa brotið siðareglur Innlent Gruna að DeepSeek byggi á gögnum ChatGPT Erlent UNRWA hættir líklega allri starfsemi á Gasa og Vesturbakkanum í dag Erlent Öllum heilsast vel eftir fæðingu í háloftunum Innlent Eldgosin í stærri kantinum verði þau við flekamótin Innlent Gengur í storm með slyddu eða snjókomu Veður Tafir á Reykjanesbraut og víða óvissustig Innlent Fleiri fréttir Tafir á Reykjanesbraut og víða óvissustig Ráðgjafar loftslagsráðuneytis telja losunarskuldbindingar ekki nást Starfsemin sé ekki tryggð miðað við núverandi framlög Segja formann fræðslunefndar hafa brotið siðareglur Eldgosin í stærri kantinum verði þau við flekamótin Vegfarendur horfi upp og húseigendur fjarlægi grýlukertin „Við ætlumst til að fólk finni lausnir og leysi deiluna“ Öllum heilsast vel eftir fæðingu í háloftunum Björn Ingi aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Undrandi foreldrar og barnið sem fæddist í flugvél Býst við því að boða til fundar í kjaradeilu kennara Samþykktu nýjar siðareglur kjörinna fulltrúa Skýringar konunnar haldi ekki vatni og pósturinn af kynferðislegum toga „Þá gerist það bara mjög skyndilega að hundurinn ræðst að mér“ Hæstiréttur klofnaði í nauðgunarmáli Inga Vals Ísland ver mest Evrópuþjóða í leikskóla Leita vitna að árás hunds á konu Aðalmeðferð í máli foreldra gegn KÍ hefst klukkan 15 í dag „Seinni hluta febrúar eða snemma í mars er líklegt“ Mikið í húfi kæmi stórt gos úr Bárðarbungukerfinu Vill ræða við Trump í síma Spáir því að það gjósi eftir rúman mánuð Gult í kortunum Styrkjamálið hefur engin áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið Gekk út blóðugur með hendur á lofti og féll til jarðar Sjálfstæðisflokkur bætir mest við sig í nýrri könnun Býður sig fram til formanns VR Misstu stýrið og rak nálægt landi Á ekki að teljast til mannréttinda að fá að ofsækja fólk Skýtur fast á Kristrúnu: „Þetta heitir að skrópa í vinnunni“ Sjá meira