Fótbolti

Engin október-bjórhátíð fyrir liðsmenn Bayern

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Louis van Gaal fagnar sigri í þýska bikarnum síðasta vor.
Louis van Gaal fagnar sigri í þýska bikarnum síðasta vor. Mynd/AFP
Bayern Munchen hefur sjaldan byrjað jafnilla í þýsku deildinni og á þessu tímabili og gengið er byrjað að hafa áhrif á félagslið leikmanna liðsins. Louis van Gaal, þjálfari liðsins, tilkynnti nefnilega leikmönnum í dag að í staðinn fyrir að fara í árlega heimsókn liðsins á október-bjórhátíðina þá þurfa menn að mæta á aukaæfingu í staðinn.

„Það væri ekkert vit í því að mæta á bjórhátíðina undir þessum kringumstæðum," sagði Christian Nerlinger, íþróttastjóri Bayern en Bayern-liðið tapaði öðrum deildarleiknum í röð um nýliðna helgi.

Bayern vann tvöfalt á síðasta tímabili og komst að auki í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Núna er liðið í tólfta sætinu heilum þrettán stigum á eftir toppliði Mainz.

Þetta er söguleg október-bjórhátíð í Bæjaralandi því hátíðin heldur nú upp á 200 ára afmæli sitt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×