Lífið

Karl Berndsen fagnar

MYNDIR/EA
MYNDIR/EA

Í gær fagnaði Karl Berndsen áframhaldandi sigurgöngu sjónvarpsþáttarins Nýju útliti sem sýndur er á Skjá einum í húsakynnum Beauty Barsins, sem er hárgreiðslustofa Karls, staðsett í turninum við Höfðatorg í Borgartúni.

Á meðfylgjandi myndum má meðal annars sjá að Karl bauð upp á dýrindis kræsingar á hárgreiðslustofunni sinni sem er á við skemmtistað þegar kemur að stærð og stemningu.



Hér má sjá hvernig Karl hefur skilgreint vaxtarlag kvenna. Hann vill ekki að konur séu kallaðar perulaga heldur að þær notist við umrædda skilgreiningu sem er auðskilin og jákvæð.

Karl sýndi gestum hvernig hann hefur skilgreint og flokkað vaxtarlag kvenna sem hann vinnur út frá í Nýju útliti á auðveldan og jákvæðan máta.

„Ég fór að velta fyrir mér að ég yrði að þróast og þar sem að ég er ljón þá vildi ég náttúrulega hafa vit á öllu og ég hugsaði með mér ókei ég er með hárið á hreinu og meik upið svona ágætlega á hreinu. Ég vill vita meira um vaxtarlag kvenna," sagði Karl þegar hann kynnti nýju hugmyndina sína sem lagðist vel í kvenkyns gesti.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.