Fótbolti

Ranieri: Totti er besti Ítalinn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Claudio Ranieri, þjálfari Roma, gerir það sem hann getur þessa dagana til þess að bera klæði á vopnin gegn Francesco Totti en grunnt hefur verið á því góða milli þeirra síðustu vikur.

"Totti er Totti. Hann er besti ítalski leikmaðurinn og fyrirliðinn okkar. Við förum vel með hann enda er hann okkar leiðtogi," sagði Ranieri auðmjúkur en hann vill þó ekki gefa upp hvort Totti verði í iðinu gegn Napoli.

Ranieri tók Totti út af í siðasta leik við litla hrifningu leikmannsins sem rauk inn í klefa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×