Fótbolti

IFK hafði betur í Gautaborgarslagnum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ragnar Sigurðsson og Hjálmar Jónsson.
Ragnar Sigurðsson og Hjálmar Jónsson. Mynd/Tommy Holl

Fimm Íslendingar komu við sögu í Gautaborgarslag IFK og GAIS í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld. IFK vann sigur, 2-1.

Ragnar Sigurðsson og Theódór Elmar Bjarnason léku allan leikinn fyrir IFK og Hjálmar Jónsson kom inn á sem varamaður undir lok leiksins.

Þeir Hallgrímur Jónasson og Eyjólfur Héðinsson léku á miðjunni í liði GAIS í kvöld.

IFK er í sjötta sæti deildarinnar með 31 stig eftir 22 umferðir og GAIS í ellefta sæti með 25 stig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×