Innlent

Fjölskylda borgarfulltrúa færði Palestínumönnum gervifætur

Magnús Már Guðmundsson skrifar
Frá Gaza annan í jólum.
Frá Gaza annan í jólum.

Fjölskylda Bjarkar Vilhelmsdóttur, borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, dvaldi í Egyptalandi og Palestínu yfir jólin og færði heimamönnum á Gazaströndinni efni í 36 gervifætur fyrir hönd samtakanna Ísland-Palestína. Það er til viðbótar þeim sem smíðaðir voru í maí á síðasta ári og í nóvember síðastliðinum af liðsmönnum Össurar Kristinssonar og fyrirtækis hans OK Prosthetics.

Eiginmaður Bjarkar, Sveinn Rúnar Hauksson, er formaður Íslands-Palestínu. Með í för eru börn þeirra, Guðfinnur og Kristín. Fjölskyldan komst inn á Gazasvæðið á annan í jólum eftir langt ferðalag frá Egyptalandi og bið við landamærin, að sögn Guðfinns.

„Svona er lífið hér á Gaza"



Guðfinnur fjallar um ferðalagið á samskiptavefnum Facebook. Þar segir hann meðal annars: „Heimsótti flóttamannabúðir í Khan Yunis og Rafah í dag. Ótrúleg sjón og ótrúlegt að tala við fólk sem hefur misst vini og fjölskyldu í sprengjum og skotárásum í gegnum árin. Eyðilögð hús útötuð í skotgötum. Svona er lífið hér á Gaza."

Gervifótur stilltur á sjö ára stúlku sem kom í endurmat.

Í haust var lögð áhersla á að ljúka þjálfun fólks á staðnum í smíði gervifótanna með aðferð Össurar sem gerir þeim kleift að smíða limina hvar sem er og ljúka verkinu á einum til tveimur klukkustundum í stað allt að tveggja vikna.

Örlítið minna af flugeldum í ár

Tvær palestínskar konur, stoðtækjasmiðir sem fengu sérþjálfun hjá Óskari Lárussyni, eru nú að hefjast handa við smíðar úr efninu sem fjölskyldan kom með til Gaza á einstaklinga sem misst hafa ganglim fyrir neðan hné. Áður höfðu 42 einstaklingar á ýmsum aldri, allt niður í sjö ára, fengið gervifætur frá OK Prosthetics og Félaginu Ísland-Palestína.

Félagið stendur nú fyrir stöfnun fyrir efniskostnaði við gervifæturna sem kosta rúmlega 80 þúsund krónur. „Sá kostnaður er aðeins lítill hluti af venjulegu verði gervilima," segir Guðfinnur. „Ég hvet alla til að kaupa aðeins minna af flugeldum í ár og styðja þess í stað fjármögnun gervifótanna, enn vantar töluvert uppá."

Númer söfnunarreikningsins er 542-26-6990 og kennitalan er 520188-1349








Fleiri fréttir

Sjá meira


×