Fótbolti

Huntelaar á leið til HSV

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

AC Milan hefur samþykkt að lána hollenska framherjann Klaas Jan Huntelaar til þýska félagsins, HSV, út leiktíðina.

Hinn 26 ára gamli framherji óskaði eftir því að komast frá Milan þar sem hann fær lítið að spila og stefnir á að komast í hollenska landsliðið í sumar.

Huntelaar kom til Milan frá Real Madrid fyrir 15 milljónir evra síðasta sumar og skrifaði þá undir fjögurra ára samning.

Honum hefur ekki gengið vel að festa sig í sessi og aðeins komið við sögu í ellefu leikjum í vetur.



 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×