Innlent

Læsa póstkössum til að koma í veg fyrir skemmdarverk

Íslandspóstur ætlar læsa póstkössum sem eru staðsettir utanhúss á höfuðborgarsvæðinu nú yfir áramótin. Þetta hefur verið gerst síðastliðin ár vegna ítrekaðra skemmdarverka sem unnin eru á póstkössum á þessum árstíma.

Einungis verður hægt að koma einu bréfi ofan í kassana í einu en ekki opna þá það mikið að hægt sé að koma þykkari bréfum ofan í.

Þeim viðskiptavinum, sem þurfa að koma stærri bréfum í póst, er bent á næstu pósthús eða póstkassa sem staðsettir eru innandyra, til dæmis í verslunarmiðstöðvum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×