Innlent

Góð tilfinning að vera alveg sammála Ögmundi

Einar K. Guðfinnsson, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, segir það óskaplega góða tilfinningu og kærkomna tilbreytingu að geta sagt að hann væri alveg sammála Ögmundi Jónassyni samgönguráðherra. Það gerðist ekki á hverjum degi og þess vegna væri um að gera að njóta þess andartaks.

Þetta sagði Einar á Alþingi síðdegis í gær eftir að Ögmundur hafði svarað fyrirspurn hans um Reykjavíkurflugvöll með skýrum hætti þannig að hann teldi að miðstöð innanlandsflugs ætti áfram að vera á Reykjavíkurflugvelli.

Aðrir þingmenn sem til máls tóku studdu allir það sjónarmið. Árni Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstri grænna, tók þó fram að þótt hann væri þeirrar skoðunar að afar mikilvægt væri að miðstöð innanlandsflugs yrði áfram í Reykjavík þýddi það ekki í sínum huga að hún yrði endilega að vera í Vatnsmýrinni.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fyrrverandi menntamálaráðherra, kvaðst sérstaklega vilja fagna því hversu skýr svör Ögmundar hefðu verið og taldi gott að finna hann sem bandamann í því að halda innanlandsfluginu innan borgarinnar.

„Enda þýðir það ekkert fyrir þá sem vilja veg höfuðborgarinnar sem mestan að tala bara um höfuðborgina á tyllidögum en síðan ekki undirgangast þær skyldur sem höfuðborgin hefur að gegna gagnvart landinu öllu," sagði Þorgerður.

Ásbjörn Óttarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að ef innanlandsflugið færi frá Reykjavík til Keflavíkur, þá þyrfti að flytja bæði Landspítalann og stjórnsýsluna þangað líka.

Hér fyrir ofan má sjá brot úr umræðum á Alþingi um flugvöllinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×