Innlent

Ók inn í DV húsið

Valur Grettisson skrifar
Konan ók harkalega á húsið eins og sést á myndinni.
Konan ók harkalega á húsið eins og sést á myndinni.

Kona ók bifreið sinni upp á stétt og inn í hús á gatnamótum Geirsgötu og Tryggvagötu. Dagblaðið DV er til húsa á efri hæðinni en þar var LÍÚ áður með skrifstofur.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni meiddist konan lítið við áreksturinn en hún fór upp á stéttina og inn um stóra rúðu á norðurhluta hússins. Ekki þurfti að kalla á sjúkrabíl vegna óhappsins.

Samkvæmt sjónarvotti sem kom að slysinu þá var konunni verulega brugðið eftir að hafa ekið inn um rúðuna.

Hún gaf þær skýringar að hún hefði óvart stigið á bensíngjöfina í staðinn fyrir bremsuna með fyrrgreindum afleiðingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×