Fótbolti

Robben: Ég er enginn Messi

Elvar Geir Magnússon skrifar
Arjen Robben fagnar.
Arjen Robben fagnar.

„Auðvitað er Messi betri. Hann er í sérflokki," sagði Arjen Robben í sjónvarpsviðtali eftir að hafa skorað þrennu í 7-0 slátrun FC Bayern gegn Hannover í þýska boltanum.

Robben hefur verið drifkraftur Bæjara sem eru í baráttu um þrjá titla. Hann hefur skorað fjórtán mörk á tímabilinu.

„Þessi sigur gefur okkur sjálfstraust fyrir þá erfiðu baráttu sem eftir er. Á miðvikudag leikum við fyrri leikinn gegn Lyon í Meistaradeildinni og það er mikilvægt að við verðum í gírnum þá," sagði Robben.

„Það er sama hve mörg myndbönd við skoðum af honum. Það er ekki hægt að undirbúa sig undir það að mæta honum þegar hann er í þessum ham," sagði Mirko Slomka, þjálfari Hannover, eftir leik. „Þetta voru ótrúleg gæði sem hann sýndi."

FC Bayern er í toppsæti þýsku deildarinnar, hefur tveggja stiga forskot á Schalke sem vann Gladbach í dag. Hannover er í fallsæti en aðeins stigi frá öruggu sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×