Innlent

Reiðhjólamenn noti ljós

Á dögunum beindi lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þeim vinsamlegu tilmælum til hlaupara að þeir noti endurskinsmerki enda er þessi hópur oft á ferð í myrkri á eða við umferðargötur.

„Með því, og auðvitað að virða umferðarlög og reglur, stuðla þeir bæði að eigin umferðaröryggi og annarra. Þessum tilmælum var vel tekið en nú vill lögreglan einnig beina þeim til reiðhjólamanna," segir í tilkynningu frá lögreglunni.

Hinum sömu er jafnframt bent á mikilvægi þess að ljósabúnaður hjólanna sé í lagi en á því er nokkur misbrestur. Fram kemur í tilkynningunni að undanfarna daga hafi stundum litlu máttu muna að reiðhjól og bílar rækjust á í umferðinni. Oftar en ekki séu reiðhjólamenn dökkklæddir á ferð og ekki bæti það ástandið ef annað sé í ólagi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×