Fótbolti

Ballack þarf að sanna sig upp á nýtt

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ballack er búinn að vera mikið meiddur.
Ballack er búinn að vera mikið meiddur.

Oliver Bierhoff, sem er framkvæmdastjóri þýska landsliðsins, segir að það sé ekkert sjálfgefið að Michael Ballack verði valinn í þýska landsliðið á nýjan leik.

Bierhoff segir að Ballack þurfi að sanna sig upp á nýtt eftir að hafa verið lengi frá vegna meiðsla.

"Við þekkjum hans persónuleika og gæði sem eru mikilvæg fyrir landsliðið. Hann veit líka að eftir að hafa verið lengi frá þarf hann að sanna sig upp á nýtt til þess að komast í liðið," sagði Bierhoff um hinn 34 ára gamla Ballack.

Bierhoff segir einnig að Ballack þurfi aðlagast liðinu en ekki öfugt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×