Fótbolti

Gylfi spilaði í sigurleik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson.
Gylfi Þór Sigurðsson. Nordic Photos / Bongarts

Gylfi Þór Sigurðsson spilaði næstum allan leikinn er Hoffenheim vann nauman 1-0 sigur á Ingolstadt í þýsku bikarkeppninni í kvöld.

Þetta var fyrsti leikur Gylfa í byrjunarliði Hoffenheim en honum var skipt af velli í uppbótartíma.

Gylfi átti nokkur skot að marki í leiknum en náði ekki að skora. Eina mark leiksins skoraði framherjinn Demba Ba á 63. mínútu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×