Fótbolti

Khedira fer vonandi til Real Madrid

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Sami Khedira í leik með Þýskalandi á HM í Suður-Afríku í sumar.
Sami Khedira í leik með Þýskalandi á HM í Suður-Afríku í sumar. Nordic Photos / Getty Images

Umboðsmaður Þjóðverjans Sami Khedira vonar að gengið verði fljótlega á kaupum Real Madrid á kappanum.

Khedira leikur með Stuttgart og er samningsbundinn félaginu í eitt ár til viðbótar. Forráðamenn félagsins vilja frekar selja hann nú en að fá ekkert fyrir hann næsta sumar.

Umboðsmaðurinn, Jörg Neubauer, segir að vandamálið sé ekki að semja um kaup og kjör Khedira hjá Real en að félögin eigi enn eftir að komast að samkomulagi um kaupverð.

„Ef félögin ná samkomulagi munu félagaskiptin eiga sér stað," sagði Neubauer.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×