Enski boltinn

Podolski vill ekki fara frá Köln

Rafnar Orri Gunnarsson skrifar
Lukas Podolski í baráttunni með þjóðverjum.
Lukas Podolski í baráttunni með þjóðverjum.
Lukas Podolski, leikmaður Köln, segist ekki vera á leið frá félaginu en þessi fyrrum framherji Bayern Munchen hefur verið orðaður við AC Milan eftir góðan árangur með Þýskalandi á HM í sumar.

Podolski er ekki í leit að nýju félagi en hann kom aftur til Köln frá Bayern Munchen síðasta sumar.

„Núna er ég kominn í smá frí og svo fer ég á fullt með Köln aftur. Það koma fyrirspurnir frá öðrum félögum en ég hef ekki áhuga," sagði Podolski við Express.

„Ég vil taka stórt skref með félagi mínu á næstu leiktíð og aldrei að vita hvað gerist. Gætum jafnvel komið á óvart og farið í Evrópudeildina. Frábærir stuðningsmenn okkar verðskulda það."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×