Engar tilkynningar hafa borist af öskufalli í dag vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Gosmökkurinn er í um 4 kílómetra hæð samkvæmt athugun könnunarflugs sem farið var eftir hádegi. Hæg austlæg vindátt ber mökkinn til vesturs. Þetta er meðal þess sem kemur fram í stöðuskýrslu Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands.
Gosið er svipað og í gær. Flogið var yfir um klukkan 13 í dag og sást þá öskusprenging sem var enn að stíga þegar flogið var frá, en hafði þá ekki náð sömu hæð og mökkurinn sem fyrir var. Hvorki sást til gígsins né hrauns vegna lágskýja við fjallið.
Óróinn er svipaður og í gær. Um tuttugu skjálftar hafa mælst í jöklinum frá miðnætti, flestir grunnir.
Innlent