Erlent

Elísa­bet Fritzl hefur nýtt líf

Óli Tynes skrifar
Þessi mynd er af Elísabetu 18 ára skömmu áður en faðirinn lokaði hana inni. Engin mynd hefur verið birt af henni eftir 24 ára fangavist.
Þessi mynd er af Elísabetu 18 ára skömmu áður en faðirinn lokaði hana inni. Engin mynd hefur verið birt af henni eftir 24 ára fangavist.

Elísabet Fritzl sem faðirinn hélt fanginni í kjallarakompu í 24 ár er samámsaman að venjast því að lifa eðlilegu lífi. Hún er fjárhagslega sjálstæð eftir að hafa fengið bætur bæði frá stjórnvöldum og fjölmiðlum og hefur keypt sér hús í sveitaþorpi skammt frá heimabænum Amstetten.

Býr með lífverði sínum

Þar búa með henni börnin sex sem hún eignaðist með föður sínum. Elísabet sem er 44 ára gömul varð ástfangin af einum lífvarða sinna sem er 23 árum yngri en hún. Hann býr einnig með henni í húsinu.

Elísabet og börn hennar fengu öll ný nöfn áður en þau yfirgáfu sjúkrahúsið þar sem þau dvöldu fyrstu mánuðina eftir að þau losnuðu úr prísundinni. Fjölmiðlum hefur verið bannað að birta nýju nöfnin og heimilisfang fjölskyldunnar. Eftirlitsmyndavélar vakta húsið úr öllum áttum og ef þar sjást einhverjir grunsamlegir á kreiki er lögreglan fljót á vettvang. Nágrannarnir vita hver fjölskyldan er og einnig þeir hafa ópinbert eftirlit með henni.

Börnin öll í skóla

Börnin sex eru á aldrinum sex til 21. árs. Þau ganga öll í skóla. Elísabet ól þrjú barnanna upp í kjallaranum en hin þrjú tók Jósef Fritzl, faðirinn, af henni skömmu eftir að þau fæddust. Hann hafði búið til þá sögu að Elísabet hefði stungið af frá heimilinu en skilað þessum börnum á tröppurnar á húsi foreldranna. Þau ólust upp hjá honum og Rosemarie konu hans.

Öll saman -nema Jósef

Danska vefritið bt.dk segir að svo virðist sem Elísabet sé að sættast við móðir sína. Hún hafi fyrst talið víst að Rosemarie hefði vitað af fangelsuninni. Nú sé hún farin að trúa því að svo hafi ekki verið. Börnin sem ólust upp hjá ömmu sinni og afa/föður una sér vel hjá Elísabet og systkinum sínum. Fjölskyldan virðist því loks vera að sameinast. Að frátöldum auðvitað Jósef Fritzl sem afplánar lífstíðar fangelsisdóm.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×