Listi Grindvíkinga leggst alfarið gegn fyrningarleið í sjávarútvegi í núverandi mynd sem ríkisstjórnin leggur til að farin verði í haust samkvæmt tilkynningu frá listanum.
Þar segir að G-listinn vilji sjá þverpólitíska samstöðu gegn leiðinni í bæjarfélaginu og telja að þar sé stórlega vegið að undirstöðuatvinnugrein Grindavíkurbæjar.
Listi Grindvíkinga furðar sig jafnframt á afstöðuleysi annarra flokka í Grindavík um þetta risastóra hagsmunamál.
Svo segir í tilkynningunni að fjórflokkarnir, sem bjóða nú fram til sveitarstjórna, eru með stefnu í málinu á landsvísu. Þeir hafa enn ekkert minnst á málaflokkinn í sínum stefnum.