Innlent

Tóku 117 lítra af smygluðum vodka

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Þessi mynd var tekin þegar Tollurinn tók 117 lítra af vodkasmygli í gær.
Þessi mynd var tekin þegar Tollurinn tók 117 lítra af vodkasmygli í gær.
Umtalsvert magn af smyglvarningi fannst við leit tollgæslu í skipi sem var að koma frá Ameríku í gær. Alls voru 117 lítrar af vodka og bílavarahlutir teknir við leit tollvarða í skipinu. Málið telst upplýst, að því er fram kemur á vef Tollstjórans í Reykjavík.

Tollgæslan gerir árlega upptækt mikið magn af ólöglega innfluttum varningi sem reynt er að smygla til landsins. Mörg þessara mála upplýsast vegna aðstoðar almennings.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×