Fótbolti

Bild: Ribery áfram hjá Bayern

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Franck Ribery.
Franck Ribery. Nordic Photos / Bongarts
Þýska götublaðið Bild hélt því fram í gær að Franck Ribery myndi á morgun skrifa undir nýjan fjögurra ára samning við Bayern München.

Bayern mætir Inter í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í Madríd á morgun en Ribery verður í leikbanni.

Hann hefur undanfarin ár verið orðaður við mörg sterkustu félög Evrópu, allra helst Real Madrid, Barcelona og Manchester United, og bjuggust margir við því að hann færi til eitt þeirra liða í sumar.

En Bild segir að samkomulag fyrir nýjum samningi sé í höfn og hann verði undirritaður á morgun. Ribery er 27 ára gamall og þykir einn besti miðvallarleikmaður heims.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×