Erlent

Berlusconi segi af sér

Gianfranco Fini og Silvio Berlusconi.
Gianfranco Fini og Silvio Berlusconi. Mynd/AP

Gianfranco Fini, forseti ítalska þingsins, vill að Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, segi af sér embætti. Fini er einn af stofnendum Frelsisflokks Berlusconi, en hann sagði skilið við flokkinn í sumar. Nokkrir þingmenn gerðu slíkt hið sama og við það veiktist pólitísk staða Berlusconi mikið. Ríkisstjórn hans hefur ekki lengur þingmeirihluta.

Sjálfur hefur Berlusconi fulllyrt að ríkisstjórn hans muni sitja áfram til loka kjörtímabilsins en næstu þingkosningar fara fram eftir þrjú ár.

Fini hefur stofnað nýjan stjórnmálaflokk. Á fjöldafundi í dag sagði hann brýnt að Berlusconi stigi til hliðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×