Fótbolti

Slegist um Diego

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Þýsku félögin Schalke og Wolfsburg berjast nú hatrammlega um að tryggja sér þjónustu Brasilíumannsins Diego sem leikur með Juventus.

Diego virtist vera á leiðinni til Wolfsburg en Schalke hefur stokkið í slaginn á elleftu stundu og ætlar sér að ræna Diego frá félaginu.

Leikmaðurinn er falur fyrir 16-17 milljónir evra en orðspor hans í Þýskalandi er frábært eftir að hann spilaði afar vel fyrir Werder Bremen á sínum tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×