Fótbolti

Ribery þarf meiri vernd frá dómurum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Hollendingurinn Mark Van Bommel er orðinn þreyttur á því hversu oft félagi sinn hjá FC Bayern, Franck Ribery, er negldur niður í leikjum og vill að hann fái betri vörn hjá dómurum deildarinnar.

"Í hverjum einasta leik er reynt að sparka Franck úr leiknum. Sóknarmaðurinn verður að fá meiri vernd því hann er oftar en ekki tekinn niður að aftan," sagði Van Bommel.

Ribery meiddist síðast í leiknum gegn Hoffenheim um daginn en hann hefur mikið verið meiddur síðan hann kom til Þýskalands.

Meiðslin núna munu halda honum utan vallar í tæpan mánuð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×