Erlent

Rótaði í rusli ráðherrans

Danski þjóðarflokkurinn hefur hvatt þingmenn á þjóðarþinginu þar í landi til að senda heimilissorp sitt á skrifstofur Ekstrablaðsins.

Ástæðan er meint grúsk útsendara blaðsins í sorptunnum Karen Elleman umhverfisráðherra sem afhjúpaði í kjölfarið meinta misbresti í sorpflokkun ráðherrans. Uppátækið hefur mætt hörðum viðbrögðum og hefur Elleman kært blaðið til lögreglu. Þjóðarflokkurinn segir að rusl frá 179 þingmönnum verði örugglega vel þegið á ritstjórnarfundum Ekstrablaðsins. - þj






Fleiri fréttir

Sjá meira


×