Erlent

Lögreglumenn særðir eftir sprengjuárás í Belfast

Ráðist var á lögreglumennina í vesturhluta Belfast í nótt.
Ráðist var á lögreglumennina í vesturhluta Belfast í nótt.

Þrír lögreglumenn slösuðust í sprengjuárás á Norður Írlandi í nótt. Lögregla var kölluð út vegna innbrots hjá veðmangara í vesturhluta Belfast en þegar lögreglumennirnir komu á vettvang var sprengju kastað að þeim. Þeir voru í framhaldinu fluttir á sjúkrahús og er einn mannanna talsvert særður. Hann undirgengst skurðaðgerð síðar í dag.

Talið er að klofningshópur úr írska lýðveldishernum beri ábyrgð á tilræðinu en árásarmannsins er enn leitað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×