Kastaði einhverfu barni með valdi út úr Hólabrekkuskóla Karen Kjartansdóttir skrifar 9. nóvember 2010 18:44
Sex ára dreng með asperger-heilkenni var hent út með valdi í frímínútur af starfsmanni sem átti að veita honum stuðning. Móðir drengsins segir hann í áfalli eftir atvikið og sárnar mjög að starfsmaðurinn eigi enn að vinna með barninu. Skólayfirvöld harma atvikið. Bára Ósk Jónsdóttir á sex ára dreng sem glímir við ýmisleg vandamál. Í leikskóla hafði hann ávallt manneskju með sér til stuðnings en í haust fór hann í sex ára bekk í Hólabrekkuskóla. Móðir hans segir aðstæður þá hafa breyst mjög til hins verra. Drengurinn þjáist af miklum kvíða og fælni, sérstaklega reyna frímínúturnar á hann. Hann hefur því fengið leyfi til að dvelja inni á meðan þær standa yfir. Móðirin segir að fyrir skömmu hafi stuðningsfulltrúi hafið störf við skólann og átt hann að hjálpa drengnum að þrauka frímínúturnar. Móðirin segir starfsmanninn eitthvað hafa misskilið hlutverk sitt- hann hafi hent barninu út á skokkaleistunum og peysu og læst dyrunum á eftir þótt frost væri úti og barnið skelfingu lostið. Sem betur fer hafi annar starfsmaður séð drenginn úti og komið honum til aðstoðar í snatri. Bára Ósk vill ekki að starfsmaðurinn sinni barni hennar aftur. „Honum var hent út með ofbeldi að mér skilst. Þetta er eitthvað sem á ekki að gerast í skólum, hann er bara sex ára," segir Bára. Hún segir að skólagangan hafi reynt mjög á barnið sitt og þetta atvik hafi ekki orðið til að auðvelda því lífið. Drengurinn þurfi mun meiri stuðning en hann hafi fengið en hjálpin sé ekki í boði vegna sparnaðar. Skólastjórinn segist harma að þetta atvik hafi komið upp. Starfsmaðurinn hafi fengið misvísandi skilaboð. Farið hafi verið yfir allt verklag eftir að málið kom upp og leitað verði lausna í samvinnu við foreldrana.
Mest lesið „Þetta má aldrei gerast aftur“ Innlent Segir ákvörðun um kæru fyrir nauðgun tekna fyrir andlát flugmanns Innlent Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Innlent Sjö Rúmenar gefa ekkert uppi um tugmilljóna króna þýfi Innlent Sextán ára dómur fyrir manndráp í Drangahrauni stendur Innlent Pilturinn áfram bak við lás og slá Innlent Jón Gnarr skráður í Viðreisn og ætlar á Alþingi Innlent Áfrýjaði engu nema ákvörðun um launin og málið fellt niður Innlent Rannsókn á byrlunar- og símamáli Páls skipstjóra úr sögunni Innlent Kristín Benediktsdóttir nýr umboðsmaður Alþingis Innlent Fleiri fréttir Segir Vinstri græn ekki styðja frekari breytingar á útlendingalögum Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Samherjaskipstjórinn segir málinu ekki lokið Líklega verði flett ofan af fleirum í rannsókn á brotum Diddy Hvers vegna er skiltið í Kúrlandi svo hátt uppi? Rannsókn lögreglu haft kælingaráhrif á alla blaðamannastéttina Um 100 þúsund fjár slátrað á Selfossi Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Hamra járnið meðan það er heitt í mansalsmálum Bein útsending: Upplýsingafundur með íbúum Voga vegna jarðhræringa Nemandinn sem stakk Ingunni áfrýjar dómi Ráðþrota móðir, umtöluð rannsókn og skiltaþjófnaður Fagnar niðurstöðunni en lýsir yfir þungum áhyggjum „Þetta má aldrei gerast aftur“ Hissa ef tillaga um stjórnarslit hefði ekki komið fram Sextán ára dómur fyrir manndráp í Drangahrauni stendur Áfrýjaði engu nema ákvörðun um launin og málið fellt niður Þrjú vilja stýra Minjastofnun Varla komist í kast við lögin fyrr en hann flutti kókaín til landsins Bein útsending: Framtíð menntunar á tímum gervigreindar Bein útsending: Sátt um betra menntakerfi Rannsókn á byrlunar- og símamáli Páls skipstjóra úr sögunni Nýr umboðsmaður og SI svara seðlabankastjóra Sjö Rúmenar gefa ekkert uppi um tugmilljóna króna þýfi Vilja að takmarkanir á starfsmannaleigur verði skoðaðar Kristín Benediktsdóttir nýr umboðsmaður Alþingis Tuttugu lyklar í Árbæjarlaug horfnir Inga segir landið að sökkva í sæ vargaldar Jón Gnarr skráður í Viðreisn og ætlar á Alþingi Svandís Svavarsdóttir mætir í Samtalið Sjá meira