Fótbolti

Neuer líkir Raul við Páfann

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Manuel Neuer.
Manuel Neuer.

Manuel Neuer, markvörður Schalke, fór mikinn í viðtali við Sport-Bild og þarf líklega að svara fyrir ýmislegt sem hann sagði í viðtalinu við blaðið.

Þar styður Neuer félaga sína í liðinu sem fóru aðeins fram úr sér í skemmtanahaldi og líkir liðsfélaga sínum, Raul, við Páfann.

"Ég var í fríi þegar ég heyrði af því að Raul væri að koma. Mér féllust hendur því það mátti líkja þessu við því að sjálfur Páfinn væri að koma til okkar," sagði Neuer sem síðan ræddi um drykkju leikmanna.

"Svona kvöld eru mikilvæg fyrir liðið. Við þroskumst saman og kynnumst betur. Það er líka gott að komast aðeins frá fótboltanum."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×