Innlent

Eldur laus í gámaflutningavagni í Öxnadal

Eldur kviknaði í hjólabúnaði á gámaflutningavagni, sem var aftan í flutningabíl, þegar hann var í Öxnadal á leið til Akureyrar í gærkvöldi.

Ökumaður bílsins gat sjálfur slökkt eldinn, sem ekki barst í farminn. Vagninn var svo laskaður að flytja þurfti gáminn yfir á annan vagn, til að koma honum til Akureyrar.

Talið er að bremsurnar í hjólabúnaði vagnsins hafi ofhitnað með þessum afleiðingum.-






Fleiri fréttir

Sjá meira


×