Haíti: Hjálparstarfið hefur safnað 21 milljón 3. maí 2010 16:36 Sérþjálfað fólk ræðir við börnin í sérstökum barnamiðstöðvum, skipuleggur leiki og notar myndmennt til að hjálpa þeim að tjá erfiða reynslu sína og vinna úr henni
12,3 milljónir króna hafa safnast í páskasöfnun Hjálparstarfs kirkjunnar fyrir Haíti en stofnunin hefur þá samanlagt safnað tæplega 21 milljón króna til uppbyggingar á Haítí en landið fór illa út úr jarðskjálftanum í lok janúar. „Með 5,5 milljónum króna sem söfnuðust strax eftir skjálftann og þriggja milljóna króna framlagi frá Utanríkisráðuneytinu er heildarupphæðin sem safnast hefur hjá Hjálparstarfinu til hjálpar- og uppbyggingarstarfa á vegum ACT Alliance, Alþjóðahjálparstarfs kirkna, á Haítí tæplega 21 milljón króna" segir Jónas Þórisson framkvæmdastjóri Hjálparstarfsins. Hjálparstarfið er aðili að ACT en samtökin voru að störfum á Haítí fyrir skjálftann og því í einstakri aðstöðu til að sinna þar neyðar- og uppbyggingarstarfi. „Mikið starf hefur verið unnið en enn er langt í land. Enn er hægt að greiða valgreiðsluna vegna páskasöfnunarinnar í heimabönkum," segir ennfremur í tilkynningu.Koma þaki yfir höfuðið Þá segir að mikil áhersla sé á að koma þaki yfir fólk. „ACT Alliance segir 90% af 1,5 milljónum heimilislausra í landinu hafa fengið nauðsynlegt byggingarefni til að koma sér upp húsnæði til bráðabirgða. M.a. hafi 7.400 hektarar norðan við höfuðborgina Port-au-Prince verið opnaðir þeim sem þurfa að koma sér upp tímabundnu húsnæði. ACT hefur dreift dýnum og nauðsynlegum heimilisbúnaði til tugþúsunda fjölskyldna, reist 5000 salerni í 651 búðum heimilislausra í Port-au-Prince, Jacmel, Gressier, Leogane og víðar. ACT-aðilar dreifa um 100.000 lítrum af vatni á dag og 4000 fjölskyldur hafa fengið sáðkorn." Barnamiðstöðvar „Frá upphafi skipulagði ACT meðferðarstarf með börnum. Sérþjálfað fólk ræðir við börnin í sérstökum barnamiðstöðvum, skipuleggur leiki og notar myndmennt til að hjálpa þeim að tjá erfiða reynslu sína og vinna úr henni," segir að endingu. Reikningsnúmer söfnunarinnar er 0334-26-886 kt. 450670-0499. Enn er hægt að greiða valgreiðslur í heimabanka en þær falla út 17. maí.
Mest lesið „Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“ Innlent Þiggja milljónir í húsnæðisstyrk þótt þau búi nálægt Alþingi Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á Stuðlum Innlent Þórdís svarar gagnrýni vegna húsnæðisstyrks Innlent Nokkrir foreldrar sóttu börn á lögreglustöð Innlent Vistmaður og starfsmaður Stuðla fluttir á bráðamóttöku Innlent Snorri vill leiða Miðflokkinn í Reykjavík Innlent Sér ekki á svörtu hjá „hinum útvalda“ Erlent Guðmundur Árni hættur við og styður Ölmu Innlent Fleiri fréttir Þori formaðurinn ekki að taka slaginn sé hann ekki mikill leiðtogi Vendingar í pólitíkinni og áhrif frestunar bankasölu á markaðinn Guðmundur Árni hættur við og styður Ölmu Vistmaður og starfsmaður Stuðla fluttir á bráðamóttöku Bilun í brunaboða á Keflavíkurflugvelli Snorri vill leiða Miðflokkinn í Reykjavík Þórdís svarar gagnrýni vegna húsnæðisstyrks Slagurinn harðnar í Suðvestur hjá Sjálfstæðisflokki „Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“ Formaður Framsóknar segir ríkisstjórnina hafa talað sjálfa sig niður Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á Stuðlum Nokkrir foreldrar sóttu börn á lögreglustöð „Það þarf að nýta auðlindir landsins, það er alveg ljóst“ Þiggja milljónir í húsnæðisstyrk þótt þau búi nálægt Alþingi Fleiri þvottavélar en pólitíkusar á skjánum vikuna fyrir kosningar Hefur sett saman um 100 módelbíla í Hveragerði Dæmi um að menntaðir kennarar nái ekki endum saman Óvænt og taktískt útspil Sigurðar Inga Páll Valur vill forystusæti fyrir Samfylkinguna í Suðurkjördæmi Fyrstu skoðanakannanir eftir stjórnarslit og öll auglýsingapláss uppbókuð Lætur af störfum sem bæjarstjóri Voga Vill leiða Viðreisn í Suðurkjördæmi Eldur kviknaði í bílskúr Helgi hættur á Heimildinni Halla Hrund gengin til liðs við Framsókn og tekur sæti formannsins Ásmundur Einar skipar tvo skrifstofustjóra Settur tímabundið sem sýslumaður á Austurlandi „Óásættanlegt að fyrrverandi starfsfólki sé haldið í spennitreyju“ „Eigum við ekki að fara yfir þann þröskuld þegar við komum að honum?“ Átti líka morgunspjall við ríkislögreglustjóra vegna Yazans Sjá meira