Innlent

Körfuboltamenn á kafi í snjó

Björgunarsveit var kölluð út í gærkvöldi til að aðstoða heilt körfuboltalið frá Sauðárkróki, sem sat fast í rútubíl uppi á Þverárfjalli, á milli Blönduóss og Sauðárkróks, eftir glæstan sigur á liði Breiðabliks í bikarkeppninni.

Tvær klukkustundir tók að koma rútunni til byggða ásamt tveimur öðrum bílum, sem voru fastir á fjallinu. Engan sakaði.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×