Ítalski kylfingurinn Francesco Molinari, sem lék með Ryderliði Evrópu á Celtic Manor í haust, er efstur að loknum fyrsta keppnisdegi á HSBC meistaramótinu í golfi í Kína. Bandaríkjamaðurinn Tiger Woods lék ágætlega og er hann á 68 höggum eða 4 höggum undir pari vallar.
Molinari lék á 65 höggum eða 7 höggum undir pari. Englendingurinn Lee Westwood er annar, einu höggi á eftir Molinari, en Westwood er í efsta sæti heimslistans. Átta af alls tíu efstu kylfingum heimslistans eru mættir til leiks á þessu móti en mótshaldarar greiða keppendum háar fjárhæðir fyrir að mæta til leiks.
Woods lék fyrri 9 holurnar á pari en hann fékk fjóra fugla á síðari níu holunum. Phil Mickelson frá Bandaríkjunum hefur titil að verja á mótinu en hann lék á 69 höggum.
Staða efstu manna:
Francesco Molinari -7
Lee Westwood -6
Yuta Ikeda -5
Henrik Stenson -5
Noh Seung-Yul -5
Pablo Martin -4
Tiger Woods -4
Luke Donald -4
Richie Ramsay -3
Louis Oosthuizen -3
--------------
Adam Scott -3
Padraig Harrington -2
Rory McIlroy -1
Matteo Manassero -1
Rickie Fowler -1
Ernie Els par
Martin Kaymer par
Nick Watney par
Paul Casey + 1
Graeme McDowell + 2