Teygt á vegagerð vegna kreppu 16. desember 2010 19:45
Vinna er hafin við lokakafla Suðurstrandarvegar, milli Grindavíkur og Þorlákshafnar. Verkið væri unnt að klára á einu ári, að mati verktakans, en er vegna kreppunnar teygt yfir næstu tvö ár.Nærri helmingur af þessum 58 kílómetra langa vegi er þegar tilbúinn og kominn með bundið slitlag. Við ökum hér eftir sjö kílómetra kafla næst Grindavík, sem kláraðist fyrst og fyrr á þessu ári var lokið við 20 kílómetra milli Þorlákshafnar og Hlíðarvatns.KNH-verktakar eru að leggja 16 kílómetra kafla milli Krýsuvíkur og Herdísarvíkur og þessa dagana eru starfsmenn Suðurverks að setja upp vinnubúðir vegna lokakaflans, sem eru 15 kílómetrar milli Ísólfsskála og Krýsuvíkur. Stærsta jarðýta verktakans er byrjuð að ryðja fyrir nýrri veglínu í gegnum Ögmundarhraun.Allt að fimmtán starfsmenn verða í verkinu og þeim finnst að þarna væri hægt að vinna hraðar. Erlingur Jónsson, verkstjóri hjá Suðurverki, segir verkið skrifað á 2 ár en segir enga spurningu um að unnt væri að vinna það mun hraðar.„Það er hægt að vinna þetta alveg á rétt rúmu ári," segir Erlingur. Verkið sé látið teygjast vegna kreppunnar.
Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Sat yfir líki í fjóra sólarhringa Innlent Gaf sig fram við lögreglu blautur og kaldur eftir tvo daga á vergangi Innlent Skilríki afhent í Hagkaupum í Skeifunni Viðskipti innlent Enn að átta sig á breyttri stöðu eftir tapið fyrir Þórdísi Innlent Oddný gleymir aldrei símtali Bjarna Ben Innlent Lygavaðall um Þórdísi og enginn sakni vinstrisins Innlent Lögreglustjóri skýtur á Grindavíkurnefnd Innlent Opinn en mannlaus veitingastaður Innlent Brynjar fái þriðja sætið: „Þeir vita meira en ég“ Innlent Fleiri fréttir Óvenjuleg aukin virkni við Geysi Alma og Guðmundur Ari leiða í Kraganum Ragnar Þór tekur sæti Tomma og verður oddviti Leitað að sex ungmennum um helgina og eitt enn týnt „Hefði kannski verið heppilegra að allt væri komið“ Oddný gleymir aldrei símtali Bjarna Ben Ekið á tvo á gatnamótum við Kringlumýrarbraut Vilja skýrari svör um afgreiðslu fjárlaga og þingslit Stunguárásin í Grafarvogi: Grunar ekki að málið tengist skipulagðri glæpastarfsemi Ekkert drama á bak við frestun fundarins Faðirinn áfram í gæsluvarðhaldi Bæjarstjóri dembir sér í landsmálin Gaf sig fram við lögreglu blautur og kaldur eftir tvo daga á vergangi Kosningapallborð: Kanónur kveðja Brynjar fái þriðja sætið: „Þeir vita meira en ég“ Her af iðnaðarmönnum við framkvæmdir á Stuðlum Grindavík opnuð en lögreglan ósátt við upplýsingagjöf Lygavaðall um Þórdísi og enginn sakni vinstrisins Passi ekki að vera saksóknari og í pólitík á sama tíma Fimm þingmenn af átta horfnir á braut Lögreglustjóri skýtur á Grindavíkurnefnd Enn að átta sig á breyttri stöðu eftir tapið fyrir Þórdísi Mun ræða við formenn flokkanna um fjárlögin Dagmar Ýr tekur við stöðu sveitarstjóra af Birni Sat yfir líki í fjóra sólarhringa Grindavíkurbær nú opinn almenningi Opinn en mannlaus veitingastaður Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokk á útleið Húsnæði Stuðla ráði ekki við málaflokkinn og úrbætur gengið hægt Sé líklega met að vera hafnað af flokki sínum tvisvar í sama mánuði Sjá meira