Erlent

Mikil slagsmál milli þingmanna á þingi Úkraínu

Mikil slagsmál brutust út milli þingmanna á þingi Úkraínu í Kiev í gærdag. Þegar verst lét slógust 50 þingmenn við hverja aðra í þingsalnum, með hnefum, skóm og stólum.

Eftir slagsmálin þurfti að leggja tvo af þingmönnunum inn á sjúkrahús vegna sára sinna. Slagsmálin hófust þegar stjórnarflokkarnir gengu til atkvæða um tillögu sem meirihluti var fyrir í þinginu.

Stjórnarandstæðingar reyndu að koma í veg fyrir atkvæðagreiðsluna með því að hindra aðgang að ræðustól þingsins. Þá varð fjandinn laus og stjórnarþingmenn hjóluðu í þá sem höfðu myndað skjaldborg um ræðustólinn.

Slagsmálin stóðu í um 5 mínútur og létu öryggisverðir þingsins þau afskiptalaus.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×