Innlent

Guðbjarni enn ófundinn

Guðbjarni Traustason.
Guðbjarni Traustason.
Strokufanginn, sem leitað hefur verið að síðan um helgi, að hann skilaði sér ekki úr bæjarleyfi um helgina, er enn ófundinn. Lögregla telur enn að hann sé á höfuðborgarsvæðinu og telur sig hafa vissu fyrir því að hann sé ekki farinn úr landi.

Ekki hefur verið lögð ofur áhersla á leitina þar sem maðurinn er ekki talinn hættulegur, en hann hlaut dóm fyrir aðild að stórfelldu fíkniefnasmygli til landsins. Lögregla hefur fengið ýmsar vísbendingar um ferðir hans, en þær hafa ekki enn leitt til handtöku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×