Mascherano sakar Liverpool um lygar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. september 2010 09:00 Javier Mascherano í búningi Barcelona. Nordic Photos / AFP
Javier Mascherano hefur sakað forráðamenn Liverpool um að hafa logið til um ástæðurnar fyrir því að hann vildi fara frá félaginu og til Barcelopna. Mascherano gekk í raðir Barcelona nú á dögunum fyrir 20 milljónir punda en hann vildi fá að fara síðasta sumar en fékk ekki. Hann kom ekki við sögu í leik Liverpool gegn Manchester City í síðasta mánuði. Mascherano var þá sagður hafa neitað því að spila til að þvinga fram sölu sem hann vildi fá í gegn vegna óánægju fjölskyldu hans með lífið í Bretlandi. Mascherano segir við The Guardian í dag að ástæðan fyrir því að hann vildi fara nú var að búið var að lofa honum því að hann mætti fara ef ásættanlegt tilboð bærist í hann. „En þegar þeir fóru að blanda fjölskyldu minni í þessi mál og segja eitthvað út í loftið fannst mér það auðvitað mjög slæmt," sagði Mascherano. „Þeir gáfu mér loforð fyrir ár síðan sem þeir stóðu aldrei við. Þetta hafði ekkert með fjölskyldu mína að gera. Þegar maður heyrir eða les lygar verður maður auðvitað reiður." Hann hrósaði sínum gamla stjóra hjá Liverpool, Rafa Benitez, mjög. „Hann er einn af þeim þjálfurum sem hafa kennt mér hvað mest á ferlinum. Hann kenndi mér leikskipulag og ég er honum afar þakklátur." Þegar Benitez keypti Mascherano frá West Ham var hann að spila með varaliði félagsins. „Hann gaf mér tækifæri þegar engum öðrum datt í hug að leyfa mér að spila. Ég verð honum þakklátur alla mína ævi."
Spænski boltinn Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Sjá meira