Viðskipti innlent

Skiptastjóri Fons vill rifta ellefu samningum

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Pálmi Haraldsson.
Pálmi Haraldsson.

Óskar Sigurðsson, skiptastjóri þrotabús Fons, eignarhaldsfélags Pálma Haraldssonar, vill rifta allls 11 samningum um lán og arðgreiðslur út úr félaginu síðustu tvö árin fyrir bankahrun. Um er að ræða samninga og greiðslur upp á samtals níu milljarða króna. Þetta kom fram á fundi með kröfuhöfum Fons í dag.

Skiptastjórinn vill meðal annars rifta arðgreiðslu frá árinu 2007 upp á 4,4 milljarða króna til félagsins Matthews Holding SA í Lúxemborg, sem var í eigu Pálma og viðskiptafélaga hans Jóhannesar Kristinssonar, en fréttastofa greindi sem kunnugt er frá því um miðjan janúar síðastliðinn að verið væri að kanna grundvöll fyrir riftun á umræddri arðgreiðslu.

Skiptastjóri þrotabús Fons ætlar að láta reyna á riftun 11 samninga, samtals að andvirði níu milljarða króna, sem gerðir voru síðustu tvö árin áður en Fons varð gjaldþrota. Meðal þess sem reynt verður að rifta er fjögurra milljarða króna arðgreiðsla til félags í Lúxemborg ári fyrir bankahrun.

Samkvæmt lögum um um gjaldþrotaskipti eru þeir samningar riftanlegir sem fela í sér gjafagerninga eða ótilhlýðlilega ráðstöfun fjármuna og eru gerðir allt að 24 mánuðum áður en fyrirtæki leitaði fyrst eftir heimild til greiðslustöðvunar. Fons óskaði eftir gjaldþrotaskiptum í apríl á síðasta ári og kröfur í þrotabúið nema alls 40 milljörðum króna.

Pálmi Haraldsson sagði í samtali við fréttastofu að hann hefði látið endurskoðendur og lögfræðinga fara sérstaklega yfir arðgreiðsluna og að engar líkur væru á því að hægt yrði að rifta henni. Arðgreiðslan hefði verið vegna hagnaðar Fons á árinu 2006 að félagið hefði verið gjaldfært þegar hún átti sér stað. Hún hefði jafnframt verið í samræmi við lög og reglur.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×