Fótbolti

Ribery byrjar að æfa í lok júlí

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Franck Ribery.
Franck Ribery. Nordic Photos / Bongarts
Franck Ribery getur byrjað aftur að æfa í lok næsta mánaðar en hann gekkst nýverið undir aðgerð á nára.

Ribery átti eins og franska landsliðið hræðilegu gengi að fagna á HM í Suður-Afríku og mun sjálfsagt gleðjast yfir því að geta spilað með Bayern München í Þýskalandi á nýjan leik.

Hann skrifaði á vordögum undir nýjan samning við félagið sem tryggir að hann verði þar til loka tímabilsins 2015.

Ribery hafði verið orðaður við mörg stærstu félög heims, allra helst Real Madrid, Barcelona og Manchester United. Hann ákvað þó að vera um kyrrt í Þýskalandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×