Viðskipti innlent

Endurskoðendur fá á baukinn hjá rannsóknarnefnd

Það er mat rannsóknarnefndarinnar að þessi skýrslugerð endurskoðenda hafi í flestum tilvikum verið mjög ófullkomin og ekki í samræmi við fyrrnefnd fyrirmæli.
Það er mat rannsóknarnefndarinnar að þessi skýrslugerð endurskoðenda hafi í flestum tilvikum verið mjög ófullkomin og ekki í samræmi við fyrrnefnd fyrirmæli.
Það er álit rannsóknarnefndar Alþingis að skort hafi á að endurskoðendur sinntu nægilega skyldum sínum við endurskoðun reikningsskila fjármálafyrirtækjanna árið 2007 og við hálfársuppgjör 2008, að því er varðar rannsókn þeirra og mat á virði útlána til stærstu viðskiptaaðila fyrirtækjanna, meðferð á hlutabréfaeign starfsmanna og fyrirgreiðslu fjármálafyrirtækja til kaupa á hlutabréfum í sjálfum sér.

Þetta kemur fram í skýrslu nefndarinnar þar sem endurskoðendur bankanna fá á baukinn fyrir að hafa alls ekki sinnt starfs sínu sem skyldi. Vil rannsóknarnefndin að endurskoðendur verði rannsakaðir sérstaklega.

Í skýrslunni segir að í þessu sambandi verður að árétta að aðstæður höfðu á þessum tíma þróast með þeim hætti að tilefni var til þess að gefa þessum atriðum sérstakan gaum.

Samkvæmt reglum um endurskoðun fjármálafyrirtækja bar endurskoðanda, að lokinni hefðbundinni endurskoðunarvinnu, að senda stjórn viðkomandi fjármálafyrirtækis sérstaka endurskoðunarskýrslu

þar sem gerð væri m.a. grein fyrir helstu niðurstöðum endurskoðunarkannana á innra eftirliti fjármálafyrirtækisins og áliti endurskoðanda á gæðum innra eftirlitskerfis stofnunarinnar og starfsemi innri endurskoðunardeildar.

Það er mat rannsóknarnefndarinnar að þessi skýrslugerð endurskoðenda hafi í flestum tilvikum verið mjög ófullkomin og ekki í samræmi við fyrrnefnd fyrirmæli.

Í lögum um fjármálafyrirtæki og reglum um endurskoðun fjármálafyrirtækja segir m.a. að fái endurskoðandi vitneskju um verulega ágalla á rekstri eða atriði er varða innra eftirlit, greiðslutryggingu útlána eða önnur atriði, sem veikt geta fjárhagsstöðu hlutaðeigandi fyrirtækis, eigi hann að upplýsa bæði stjórn fyrirtækisins og Fjármálaeftirlitið um það. Þetta á einnig við um sambærileg atriði sem endurskoðandi kemst á snoðir um og varða fyrirtæki í nánum tengslum við hlutaðeigandi fjármálafyrirtæki.

Við skýrslutöku hjá rannsóknarnefnd Alþingis voru endurskoðendur fjármálafyrirtækjanna spurðir hvort þeir hefðu upplýst Fjármálaeftirlitið í samræmi við framangreind ákvæði. Svör þeirra voru á öll einn veg, að þeir hefðu aldrei fram að falli bankanna komið slíkri ábendingu á framfæri við Fjármálaeftirlitið.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×