Fótbolti

FC Bayern vill fá Kakuta

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Frakkanum Gael Kakuta skaut upp á stjörnuhimininn síðasta vetur þegar félagaskipti hans frá Lens til Chelsea lentu inn á borði FIFA.

Hann á síðan eftir að slá í gegn á vellinum en hann hefur fá tækifæri fengið hjá Chelsea og kom aðeins við sögu í einum leik með aðalliði Chelsea á síðustu leiktíð.

Þessi afar efnilega 19 ára Frakki sýndi magnaða takta á EM U-19 ára liða þar sem hann var besti leikmaður franska liðsins.

Forráðamenn FC Bayern heilluðust mikið af leikmanninum þar og félagið er til í bjarga honum frá Chelsea og hafa látið í það skína að hann fái að spila þar. Það sé betri kostur en að spila með varaliði Chelsea.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×