Innlent

Svar við bréfi til Helgu mest seld - Arnaldi og Yrsu oftast skilað

Breki Logason skrifar
Bergsveinn Birgisson.
Bergsveinn Birgisson.

Töluverð traffík var í bókabúð Máls og Menningar í dag, en fjölmargir voru að skipta og skila bókum. Mest selda bókin í versluninni fyrir þessi jól er eftir Bergsvein Birgisson, sem skákaði bæði Arnaldi og Yrsu.

Mest selda bókin í desember í Mál og Menning var Svar við Bréfi Helgu eftir Bergsvein Birgisson, en næst á eftir honum komu glæpasagnahöfundarnir Arnaldur Indriðason og Yrsa Sigurðardóttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×