Innlent

Starfsmannaveisla endaði með hópslagsmálum

Þrír voru fluttir á slysadeild til aðhlynningar, eftir að starfsmannaveisla fyrirtækis fór úr böndunum á veitingastað í miðborginni í nótt og hópslagsmál brutust út.

Kallað var á lögreglu, en árásarmennirnir höfðu forðað sér áður en hún kom á vettvang. Þá hafði meðal annars einn hlotið glóðarauga, tönn verið brotin í öðrum og eitthvað sá á þeim þriðja.

Vitað er hverjir árásarmennirnir eru og verður rætt við þá í dag, ef hinir meiddu kæra þá. Óverulegar skemmdir urðu á veitingastaðnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×