Innlent

Vill varðveita arfleifð náttúrunnar

Huang Nubo
Huang Nubo
Huang Nubo hefur engan áhuga á pólitík og þykir leitt að verið sé að tengja hann við stjórnmálaöfl. Hann mun afsala sér vatnsréttindum á Grímsstöðum og er á móti virkjunum í Jökulsá. Huang svaraði spurningum Fréttablaðsins með tölvupósti í gær.

Hvernig svarar þú þeim sem sett hafa spurningarmerki við fyrirætlanir þínar í sambandi við vaxandi áhrif Kína á alþjóðamarkaði?

„Mér finnst afar leiðinlegt að sumir séu að reyna að tengja viðskiptaáætlanir mínar við pólitík. Það er ekki sanngjarnt að bendla viðskipti mín við stjórnmál í einhvers konar kalda stríðssamhengi. Líf okkar væri mun einfaldara ef menn hefðu ekki svona miklar áhyggjur af Kína.“

Hverjar eru fyrirætlanir þínar varðandi vatnsréttindi á Grímsstöðum?

„Ég er félagi í TNC, The Nature Conservancy, sem eru ein af stærstu náttúruverndarsamtökum heims og ég er mikill náttúruverndarsinni. Ef ég fæ leyfi frá yfirvöldum til að halda áfram með verkefni mitt á Grímsstöðum, verður mitt fyrsta og mikilvægasta verkefni að gera yfirgripsmikla áætlun um náttúruvernd á svæðinu.

Ég hef engan áhuga á vatnsréttindum í Jökulsá á Fjöllum og raunar er ég eindregið á móti virkjunum í þessari fallegu á, sem er ástæða þess að ég ætla að afsala mér vatnsréttindum.“

Hefur engan áhuga á pólitíkErt þú virkur í kínverskum stjórnmálum?

„Ég tek ekki þátt í pólitík, ég stunda viðskipti. Þar fyrir utan tek ég þátt í alls kyns alþjóðlegum ljóðaviðburðum og góðgerðarmálum, ásamt því að ganga mikið á fjöll. Ég hef engan áhuga á pólitík.“

Hvað finnst þér um þá opinberu umræðu sem hefur átt sér stað á Íslandi eftir að fyrirætlanir þínar urðu opinberar?

„Mér fellur ekki að vera bendlaður við pólitík á nokkurn hátt, en ég skil áhyggjur fólks í því samhengi. Kaupsýslumönnum eins og mér er ekki um að vera blandað inn í stjórnmálaumræður, en ég bjóst við þessu vegna þess að það hefur verið mikill áhugi á alþjóðlegum vettvangi á viðskiptahegðun kínverskra kaupsýslumanna. En það er alveg ljóst að ég mundi endurskoða allar fjárfestingarhugmyndir mínar á Íslandi ef þær væru líklegar til að valda pólitískri sundrung.“

Finnur þú fyrir kynþáttafordómum í umræðunni á Íslandi?

„Ég hef ekki fundið fyrir neinu slíku.“

Telur þú að umræðan sé sanngjörn?

„Ég hef ekki náð að fylgjast með umræðunni á Íslandi undanfarna daga nægilega vel þar sem ég hef verið mikið á ferðalögum. En ég tel að það sé eðlilegt að almenningi á Íslandi sé annt um nýtingu landsins, en þó finnst mér það afar ósanngjarnt ef umræðan einblínir á kynþátt minn eða þjóðerni. Ég er bara kaupsýslumaður með sýn á það hvernig á að þróa ferðamannaiðnaðinn í framtíðinni svo hann verði arðvænn fyrir landið og ferðamennina sjálfa.

Ég hef töluverðar áhyggjur af þeirri þróun sem á sér stað þegar ferðamannastaðir eru þróaðir án nægilegrar framtíðarsýnar. Það gæti endað með því að margir af fallegustu stöðum á jörðinni verði eyðilagðir. Ég vil því leggja mitt af mörkum til að varðveita arfleifð náttúrunnar svo komandi kynslóðir munu geta notið þeirra á sama hátt og forfeður okkar.“

Hefur þú áhyggjur af því að kínversk yfirvöld muni reyna að hafa áhrif á mögulega fjárfestingu þína á Grímsstöðum?

„Ég tel að það ætti ekki að vera nein ástæða fyrir kínversk stjórnvöld að hafa áhrif á fjárfestingar mínar. Eina ástæðan sem mér dettur í hug fyrir kínversk stjórnvöld að koma í veg fyrir kaupin er sú að þau teldu að þau hefðu slæm áhrif á Ísland. Ef það gerist þarf ég að hætta við áætlanir mínar, vegna þess að gjaldeyrisskipti eru háð samþykki kínverskra stjórnvalda og ég mundi þar af leiðandi ekki geta notað mína kínversku fjármuni á Íslandi.“

Ferðaþjónusta án hliðstæðuHvað ætlast þú fyrir með kaup þín á Grímsstöðum?

„Þegar ég hef fengið undanþáguna frá stjórnvöldum í báðum löndum, mun ég koma á fót íslensku fyrirtæki. Þetta fyrirtæki mun kaupa eignina og reka hana samkvæmt íslenskum lögum rétt eins og önnur fyrirtæki í landinu. Ég get ekki séð hvernig þjóðerni ætti að skipta þar máli.

Síðan mun ég bjóða umhverfisfræðingum frá alþjóðasamtökunum TNC til Íslands, þar sem meðal annars munu vera sérfræðingar á sviði vatnafræði, staðfræði, líffræðilegs fjölbreytileika, umhverfisvæns ferðamannaiðnaðar, arkitektúrs og fleira. Þeir munu skoða aðstæður á Grímsstöðum og ráðfæra sig síðan við íslenska sérfræðinga.

Svo mun ég láta framkvæma umhverfisáætlun, sem mun skipta landinu niður eftir svæðum; þeim sem verða þróuð áfram og þeim sem verða friðuð og látin ósnortin. Að því loknu mun ég leita eftir áliti almennings áður en ég sendi áætlanir mínar til íslenskra yfirvalda.

Þegar ég hef fengið samþykki frá yfirvöldum, munum við byrja hönnunarvinnu og framkvæmdir, sem ég býst við að muni taka um það bil tvö ár. Ég ætla mér að vinna með íslenskum verkfræði- og byggingafyrirtækjum og ég býst við því að ferðamannasvæðið verði tilbúið til reynslu árið 2014.

Við munum byggja 20.000 fermetra ferðamannaaðstöðu, þar á meðal fimm stjörnu hótel með meira en 100 herbergjum í 10.000 fermetrum. Einnig munum við gera stórar svítur fyrir fjölskyldur og litla hópa. Þar fyrir utan ætlum við að þróa umhverfisvænan golfvöll, aðstöðu til að stunda hesta-íþróttir, lítinn flugvöll og útsýnisflug með loftbelg.

Á sama tíma munum við einnig fara af stað með þriggja til tíu daga gönguferðir á svæðinu. Heildarkostnaður við framkvæmdirnar mun sennilega verða um 100 milljónir Bandaríkjadala.

Gangi framkvæmdir mínar á Grímsstöðum eftir mun ég einnig leita eftir staðsetningu innan Reykjavíkur fyrir fimm stjörnu hótel með um 300 herbergjum og skrifstofum fyrir fyrirtæki mitt á Íslandi. Ég ætla að kaupa tvær til þrjár litlar flugvélar og koma á fót fyrirtæki fyrir útsýnisflug.

Heildarkostnaður við þessar framkvæmdir er áætlaður aðrar hundrað milljónir Bandaríkjadala og er búist við því að þeim ljúki fyrir árið 2014.“

Vill fullt samstarf við íslenska ríkiðVilt þú eiga Grímsstaði með íslenska ríkinu? Truflar það ekki áætlanir þínar á svæðinu?

„Já, ég vil það. Hvert einasta skref sem ég tek mun verða samkvæmt íslenskum lögum. Og yfirvöld munu hafa yfirsýn yfir allar byggingaframkvæmdir sem ég hyggst ráðast í, til að hafa allt ferlið eins gagnsætt og mögulegt er og tryggja góðan árangur.“

Ert þú bjartsýnn á að verkefni þitt á Grímsstöðum skili arði?

„Ég tel að það muni taka um tíu ár fyrir verkefnin að skila arði, en þó ekki nóg til að fá fjárfestingarkostnaðinn til baka. Þó mun það efla samkeppnisstöðu mína í ferðamannaiðnaðinum á alþjóðlegum vettvangi, að Kína meðtöldu, og þar með auka hagnað minn.“

mynd/sigga hallgríms



Fleiri fréttir

Sjá meira


×